Þættir sem skipta sköpum um heilbrigt og frísklegt útlit
- May 1, 2013
- 1 min read
Dökkir baugar undir augum geta verið vísbending um að nýrun sinni ekki hlutverki sínu á fullnægjandi hátt.
Það að drekka nægilega mikið vatn getur haft gríðarleg áhrif á þennan þátt.
Fjolu Augnsmyrslið getur svo hjálpað til við að hreinsa út óhreinindi á augnsvæðinu sem líkaminn hefur safnað fyrir í baugunum.
Collagen er gríðarlega mikilvægt efni fyrir húðina til að halda henni sterkri, heilbrigðri og unglegri, til að byggja upp skemmda vefi og endurnýja vefi almennt. Collagen er hinsvegar próteinsameind sem er allt of stór til að komast í nokkru magni í gegnum húðina til að gera gagn. Til eru nokkrar tegundir collagens en allar eiga þær þetta sameiginlegt.
Við þurfum að borða collagen til að það nýtist okkur, eða fara í dýrar aðgerðir þar sem því er sprautað inn í húðina.
Líkaminn framleiðir collagen í nægu magni sé hann ungur, heilbrigður og líður ekki skort á hollu fæði. Collagen finnst í matvælum, sér í lagi dýraafurðum. Fiskroð, kjúklingaskinn og pura á kjöti eru til dæmis með mikið af collageni, en það nýtist við uppbyggingu húðarinnar. (Athugið að fitan sem fylgir puru almennt er hinsvegar ekki holl). Collagen hefur verið mikið notað í snyrtivörur, oftast unnið úr ýmsum dýraafurðum en einfaldast, ódýrast og gagnlegast er að borða það. Það er einnig til sem sérstakt bætiefni eitt og sér í töfluformi.
Þau hráefni sem collagenið þarf með sér til að halda húðinni heilbrigðri og fallegri komast hinsvegar mörg í gegnum húðina. Til að hjálpa collageninu að næra húðina er best að hráefnin séu sem náttúrulegust.
A- og C-vítamín eru gríðarlega mikilvæg líkamanum til að byggja upp collagen.

Comments