JURTASMYRSLIÐ OKKAR
- Aug 16, 2014
- 2 min read
Jurtasmyrsl
Jurtasmyrslið er flaggskip fyrirtækisins og hefur grætt marga einstaklinga.
Sérstaklega af brunasárum.
Fleiri mein sem jurtasmyrslið hefur áhrif á eru:
Sprungur á höndum og fótum og sár sem gróa illa.
Það hemur kláða og kemur að miklu leyti í veg fyrir ör.
Það hefur líka nýst vel við sólbruna.
Jurtasmyrslið er hugsað á allan líkamann og má berast á þrota, sár og sprungur án þess að hætta sé á því að það geri neitt nema gott. Þetta er mögulegt vegna sótthreinsandi áhrifa vallhumalsins og þess að einungis jurtaolíur eru í grunninum.

Vallhumallinn hefur verið notaður í þúsund ár til að græða sár.
Hermenn stráðu jurtinni meðal annars óblandaðri í sár sín til að græða þau og halda sýkingum frá.
Innihald og hver virknin er:
Kókosolía (Cocos nucifera)
Hún er nærandi og mýkjandi og er álitin koma á jafnvægi milli líkama og hugar ásamt því að vera verndandi.
Hún er góð á sprungna og þurra húð og talin góð við kláða.
Er líkust okkar húðfitu.
Býflugnavax (Beeswax)
Bindur olíuna betur saman í smyrslinu og er talin vera náttúruleg rotvörn, ásamt því að vera bakteríudrepandi (sótthreinsandi).
Viðheldur raka húðar, mýkir og græðir.
Þetta er fyrst og fremst grunnur (burðarefni) fyrir virku efnin í smyrslunum en þau hafa einnig góð áhrif á húðina.
Vallhumall (Achillea millefolium)
Eða Yarrow, er talinn vera meðal bestu lækningajurta á Íslandi.
Hann er þekktur fyrir græði- og sótthreinsieiginleika sína og virðist hafa góð áhrif á kláða.
Er sagður jafnvægisstillandi og hafa góð almenn áhrif, m.a. á blóðrásina.
Taraktogenos kurzii
Eða Chaulmogra, er þekkt á Indlandi og þar um kring.
Þetta er stórt tré og er olían unnin bæði úr trénu sjálfu og fræjunum.
Olían hefur verið mikið notuð við erfiðum húðmeinum allt frá 19. öld.
Er bakteríudrepandi og bólgueyðandi.
Telaufaolía (Melaleuca alternifolia)
Er mjög sótthreinsandi, bakteríudrepandi og vinnur vel á sveppum, bólgum og bólum.
Einnig er hún græðandi, byggir upp húðina og styrkir bláæðar.
Apríkósuolía (Prunus armeniaca)
Er góð fyrir viðkvæma og þurra húð og viðheldur teygjanleika húðarinnar.
Hún inniheldur vítamín og steinefni og er sögð vera góð burðarolía fyrir eftirmeðferð við bruna.
Hún vinnur vel á bólgum.
Lavander (Lavendula Angustifolia)
Er frábær olía sem hefur róandi og kláðastillandi áhrif.
Talin vera góð við allri öramyndun (bæði nýjum örum og einnig á gömul ör).
Er mjög græðandi, verndandi og húðendurnýjandi.
Er einnig góð á sólbruna, exem og unglingabólur.

Comments